Fyrirframgreiddur arfur
Heimilt er þeim sem það kýs að greiða lögerfingjum sínum og öðrum þeim sem standa til arfs eftir hann skv. erfðalögum nr. 8/1962 fyrirfram út arfshluta þeirra að hluta eða öllu leyti.
Við fyrirframgreiðslu arfs ber erfingja eða erfingjum að ganga frá og undirrita erfðafjárskýrslu og afhenda sýslumanni til yfirferðar og ákvörðunar á erfðafjárskatti, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um erfðafjárskatt nr. 14/2004. Skal skýrslan afhent sýslumanni í umdæmi þar sem arfláti á lögheimili.
Af fyrirframgreiddum arfi ber að greiða 10% erfðafjárskatt af öllum arfshlutanum, sbr. 2. gr. laga um erfðafjárkatt.
Nálgast má form erfðafjárskýrslu og fylla út hér (pdf-skjal) á vef ríkisskattstjóra, rsk.is.
Eyðublöð:
Erfðafjárskýrsla (hægt að fylla út beint) á vef ríkisskattstjóra
Yfirlýsing vegna fyrirframgreidds arfs (fasteign).
Uppfært 20.04.2010.


