Einkaskipti

Einkaskipti

Um skipti á dánarbúum fer eftir ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl.  

Skilyrði einkaskipta
Ef allir erfingjar eru sammála er þeim heimilt að skipta dánarbúi einkaskiptum. Þá þarf að liggja ljóst fyrir hverjir eru erfingjar og þurfa þeir að vera sammála allir sem einn um hvernig eignum og eftir atvikum skuldum dánarbúsins verður skipt. Ef ekki næst samkomulag um að sækja um leyfi til einkaskipta þurfa að fara fram opinber skipti á dánarbúinu.


Afleiðingar einkaskipta
Eftir að sýslumaður hefur gefið út leyfi til eiinkaskipta bera erfingjar einn fyrir alla og allir fyrir einn ábyrgð á skuldum hins látna. Það er mikilvægt að erfingjar geri sér grein fyrir því, áður en þeir óska eftir leyfi til einkaskipta, að eftir að skiptum er lokið taka þeir að sér alla ábyrgð á skuldum hins látna, bæði þeim skuldum sem þeim er kunnugt um og skuldum sem þeim er ókunnugt um.

Beiðni um leyfi til einkaskipta
Ef erfingjar óska eftir að skipta búi einkaskiptum fylla þeir út sérstakt umsóknareyðublað þar að lútandi og senda viðkomandi sýslumanni innan fjögurra mánaða frá andláti. Þegar umsókn hefur borist fer sýslumaður yfir hana og veitir leyfi til einkaskipta ef hann telur skilyrði vera fyrir hendi. 
Hér má nálgast beiðni um leyfi til einkaskipta og hér er að finna leiðbeiningar um útfyllingu eyðublaðs fyrir beiðni um leyfi til einkaskipta.


Frestur til að ljúka einkaskiptum
Um leið og sýslumaður veitir leyfi til einkaskipta setur hann erfingjum frest til þess að ljúka skiptum. Þessi frestur er oftast eitt ár frá andláti.

Ráðstöfun eigna bús
Þegar erfingjar hafa fengið leyfi til einkaskipta geta þeir ráðstafað eignum dánarbúsins. Erfingjar geta því selt eignir búsins, t.d. hús og bíl og tekið út af bankareikningum þess. Þeir verða að gera þetta í sameiningu og jafnframt vera sammála um það hvað hver þeirra eigi að fá í sinn hlut.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að við andlát stofnast sérstök skattskylda dánarbús viðkomandi einstaklings. Dánarbú eru lögaðilar og bera sjálfstæða skattskyldu samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fer álagning á þau eftir álagningarreglum sem gilda um lögaðila, þ.e. tekjuskattur með því álagningarhlutfalli sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 71. gr. nefndra laga.

Við andlát stofnast sérstök skattskylda dánarbús viðkomandi einstaklings. Dánarbú eru lögaðilar og bera sjálfstæða skattskyldu samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fer álagning á þau eftir álagningarreglum sem gilda um lögaðila, þ.e. tekjuskattur með því álagningarhlutfalli sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 17. gr. nefndra laga.

Vakin er athygli á því að frá gildistöku 3. gr. laga nr. 165/2010 gilda sömu ákvæði um söluhagnað af sölu íbúðarhúsnæðis sem verið hefur í eigu manns hvort sem það er dánarbú mannsins sem selur eða erfingjar.

Ákvæði um skattfrelsi söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis sem fram koma í 1. mgr. 17. gr. áðurnefndra laga eiga nú við þegar selt er íbúðarhúsnæði sem er í eigu manna á söludegi jafnt og þegar um er að ræða sölu íbúðarhúsnæðis í eigu dánarbús. Kemur þá til skoðunar stærð húsnæðisins og eignarhaldstími arfláta og erfingja. Sé húsnæðið innan stærðarmarka (600 rúmmetrar í tilviki einstaklings og 1.200 rúmmetrar í tilviki hjóna/sambúðarfólks) og samanlagður eignarhaldstími arfláta og erfingja er yfir 2 ár er hagnaður af sölu þess skattfrjáls. Sjá frekari upplysingar um skattskyldu dánarbúa hér á vef Ríkisskattstjóra, http://www.rsk.is/.   

Lok einkaskipta
Einkaskiptum lýkur formlega með því að erfingjar afhenda sýslumanni einkaskiptagerð og erfðafjárskýrslu sem hann áritar um staðfestingu.

Einkaskiptagerð
Einkaskiptagerð er skriflegur samningur erfingja um frágang mála og skal hún vera undirrituð af þeim. Ef eignir eru óverulegar eða skiptin einföld getur sýslumaður ákveðið að ekki sé nauðsynlegt að gera einkaskiptagerð ef nægar upplýsingar koma fram í erfðafjárskýrslu.

Erfðafjárskýrsla
Erfingjum ber að greiða erfðafjárskatt af þeim fjármunum sem til þeirra renna og skulu þeir fylla út sérstakt eyðublað, erfðafjárskýrslu, í þessu skyni.  Samkvæmt núgildandi lögum um erfðafjárskatt er skatturinn 10%.  Enginn skattur greiðist þó af fyrstu 1.500.000 kr. í skattstofni.  Eftirlifandi maka ber ekki að greiða erfðafjárskatt.  Sama gildir um sambúðaraðila sem tekur arf eftir hinn látna skv. erfðaskrá.  Sjá nánar síðuna um erfðafjárskatt hér til hliðar. 

Greiðsla erfðafjárskatts
Þegar erfðafjárskattur er greiddur geta erfingjar fengið áritun sýslumanns á skjöl sem þarf til að flytja eignir yfir á nöfn þeirra, t.d. ef þinglýsa þarf fasteign eða umskrá bifreið í ökutækjaskrá.  Athygli er vakin á því að ekki er heimilt að umskrá slíkar eignir fyrr en að fenginni áritun sýslumanns. 

 

Eyðublöð:

Beiðni um leyfi til einkaskipta (pdf. gamalt form)

Beiðni um leyfi til einkaskipta (word.)

Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar um einkaskipti

Erfðafjárskýrsla (hægt að fylla út beint) af vef ríkisskattstjóra

 

Lög og reglur:

Lög nr. 20/1991 um skipti á dánrbúum o.fl.  

Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt o.fl. 

 

Uppfært 27.09.2011.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica